*
* Visit http://www.phpbb.kicks-ass.net/ to find out more!
*
***************************************************************************/
/***************************************************************************
*
* This program is free software; you can redistribute it and/or modify
* it under the terms of the GNU General Public License as published by
* the Free Software Foundation; either version 2 of the License, or
* (at your option) any later version.
*
***************************************************************************/
//
// To add an entry to your BBCode guide simply add a line to this file in this format:
//
//
// This ends the BBCode guide entries
//
/***************************************************************************
*
* To add an entry to your FAQ simply add a line to this file in this format:
*
* $faq[] = array("question", "answer");
*
* If you want to separate a section enter:
*
* $faq[] = array("--", "Block heading here if wanted");
*
* Links will be created automatically.
*
* DO NOT forget the ; at the end of the line.
* DO NOT put double quotes (") in your FAQ entries. If you absolutely
* must then escape them, i.e. \"something\";
*
* The FAQ items will appear on the FAQ page in the same order as listed here.
*
***************************************************************************/
$faq[] = array("--", "Kynning");
$faq[] = array("Hvað er BB kóði 'BBCode'?", "BB kóði er svipaður og HTML. Hvort þú getur notað BB kóða á innleggjum þínum er undir umsjónarmanni umræðuborðsins komið. Þú getur líka valið hvort þú gerir BB kóðann óvirkan í hverju innleggi fyrir sig á innleggssíðunni. BB kóðinn sjálfur er svipaður og HTML, tög eru með hornklofa [ og ] frekar en < og > og það gefur það mikla stjórn yfir því hvernig innleggin koma út á skjánum. Þar sem kóðarnir eru fyrir ofan innleggin þá er mjög auðvelt að bæta þeim við með því að klikka á þá. Þetta er þó mismunandi eftir þema borðanna. Þó svo að það er svona auðvelt þá gætu þessar leiðbeiningar reynst góðar.");
$faq[] = array("--", "Útlitbreyting texta");
$faq[] = array("Hvernig er feitletrað, skáletrað og undirstrikað ", "BB kóðinn inniheldur tög sem gerir auðvelt að breyta grunn útliti texta. Þetta er gert á eftirfarandi hátt:
- Til að gera hluta af texta feitletraðan settu hann innan [b][/b], t.d.
[b]Halló[/b]
þetta gerir textann svona: Halló - Til að strika undir texta settu hann þá innan [u][/u], til dæmis:
[u]Góðan dag[/u]
verður Góðan dag - Til að gera skáletur þá á að nota [i][/i], t.d.
Þetta er [i]flott![/i]
Myndi gera: Þetta er flott!
");
$faq[] = array("Hvernig á að breyta lit og stærð á texta", "Til að breyta lit og texta þá er hægt að nota eftirfarandi tög. Athugaðu þó að útkoman fer eftir vafra þess sem skoðar hann og kerfi: - Til að breyta lit á texta þá á að setja hann innan [color=][/color]. Þú getur annað hvort skilgreint nafn á lit (s.s. red, blue, yellow, o.s.frv.) eða þú getur sett inn þrefalda sextánda tölu, s.s. #FFFFFF, #000000. Til dæmis að gera rauðan texta þá getur þú notað:
[color=red]Halló![/color]
eða
[color=#FF0000]Halló![/color]
Báðar aðferðir gefa sömu útkomu: Halló! - Til að breyta stærð á texta er gert samskonar með því að nota [size=][/size]. Þessi tög eru háð þema borðsins en það sem við mælum með er tala sem segir til um punkta stærð á stafnum. Hún byrjar á 1 (sem er svo lítill að þá sést ekki neitt) og endar á 29 (mjög stórir). Til dæmis:
[size=9]LÍTILL[/size]
mun búa til LITLA
en hins vegar:
[size=24]RISASTÓR![/size]
mun verða: RISASTÓR!
");
$faq[] = array("Get ég notað tög saman?", "Já, auðvitað getur þú það, til dæmis til að ná athygli einhvers getur þú gert svona:
[size=18][color=red][b]SJÁIÐ MIG![/b][/color][/size]
þetta myndi koma svona út: SJÁIÐ MIG!
Við mælum samt ekki með að nota mikið texta sem lítur svona út!
Mundu svo að þú þarft að sjá um að loka tögum rétt. Til dæmis þá er eftirfarandi rangt:
[b][u]Þetta er rangt[/b][/u]");
$faq[] = array("--", "Vitna í texta og föst breidd á texta");
$faq[] = array("Vitna í texta í innleggjum", "Það eru tvær leiðir til þess, með tilvísun eða án.- Þegar þú notar tilvísun til að svara innleggi þá sérðu að textinn kemur inn í kassann þar sem þú átt að setja þitt innlegg með [quote=\"\"][/quote] framan og aftan við. Þessi aðferð veitir möguleika á að vísa til innleggs eða annars sem að einhver annar hefur sent inn! Til dæmis að vitna í texta sem Jóhann skrifaði þá áttu að setja:
[quote=\"Jóhann\"]Hér á textinn að koma sem Jóhann skrifaði[/quote]
Útkoman er sú að það bætist sjálfvirkt við, Jóhann skrifaði: á undan sjálfum textanum. Mundu að þú verður að hafa gæsalappirnar \"\" sitthvoru megin við það sem þú ert að vitna í, það er ekki val um það. - Hin aðferðin er sú að blindandi vitna til einhvers. Til að gera það þá þarftu að setja[quote][/quote] tög sitt hvorumegin við textann. Þegar þú skoðar innleggið þá sérðu bara, Tilvísun: á undan textanum sjálfum.
");
$faq[] = array("--", "Búa til lista");
$faq[] = array("Búa til ónúmeraðan lista", "BB kóði styður tvær gerðir af listum, ónúmeraðaðan og númeraðan. Þetta er eins gert og í HTML. Ónúmeraður listi setur fram lista í röð en það er sett stjarna eða punktur undan hverju í listanum. Til að búa til ónúmeraðan lista þá átt að nota [list][/list] og skilgreina hvern hlut innan listans með því að nota [*]. Til dæmis að lista uppáhalds litina þína þá gerirðu svona:
[list]
[*]Rauður
[*]Blár
[*]Gulur
[/list]
Þetta býr til eftirfarandi lista:");
$faq[] = array("Búa til númeraðan lista", "Önnur aðferð við að búa til lista er sú að stjórna hvað kemur fyrir framan hvern hlut í honum. Til að búa til númeraðan lista þá gerir þú svona: [list=1][/list] til að búa til lista með bókstöfum í stað númera: [list=a][/list]. Eins og með ónúmeraðan lista þá er hver hlutur í listanum tilgreindur með því að nota [*]. Til dæmis:
[list=1]
[*]Fara í búðir
[*]Kaupa nýja tölvur
[*]Skammast yfir tölvunni þegar hún frýs
[/list]
Þetta kemur svona fram::- Fara í búðir
- Kaupa nýja tölvu
- Skammast yfir tölvunni þegar hún frýs
Fyrir lista með bókstöfum fyrir framan þá gerirðu svona:
[list=a]
[*]Fyrsta mögulega svar
[*]Annað mögulega svar
[*]Þriðja mögulega svar
[/list]
gerir:- Fyrsta mögulega svar
- Annað mögulega svar
- Þriðja mögulega svar
");
$faq[] = array("--", "Að búa til tengla/links");
$faq[] = array("Tengill á aðra vefsíðu", "phpBB BB kóði styður nokkrar leiðir til að búa tengla á aðrar vefsíður.- Fyrsta aðferðin er að nota [url=][/url] tag, hvað sem þú setur á eftir = merkinu mun valda því að það hegðar sér eins og tengill. Til dæmis að setja tengil til phpBB.com þá áttu að nota:
[url=http://www.phpbb.com/]Skoðaðu phpBB![/url]
Þetta myndi búa til eftirfarandi tengil, Skoðaðu phpBB! Þú munt taka eftir því að það opnast nýr gluggi svo að notandi getur haldið áfram að skoða umræðu borðið þar sem frá er horfið. - Ef Þú vilt að veffangið (URLið) sjálft sé sýnt sem tengill þá getur þú einfaldlega gert svona:
[url]http://www.phpbb.com/[/url]
Þetta myndi búa til eftirfarandi tengil, http://www.phpbb.com/ - Að auki er phpBB með svolítið sem kallast Töfra tengill, þetta breytir öllu sem er skrifað eins og veffang (URL) í tengil sjálfvirkt jafnvel þó svo þú skrifir ekki http://. Til dæmis með því að skrifa www.phpbb.com inn í innleggi þá leiðir það til þess að það myndast tengill, www.phpbb.com er búinn til um leið og þú skoðar innleggið.
- Það sama gerist með netföng, þú getur annaðhvort búið til netfangið t.d. nákvæmlega svona:
[email]enginn@veffang.is[/email]
Þetta verður að enginn@veffang.is eða þú getur einfaldlega skrifað enginn@veffang.is inn í innleggið og því er svo breytt sjálfvirkt þegar þú skoðar það.
Eins og með öll BB kóða tög þá getur þú sett vefföng utanum önnur tög svo sem [img][/img] (Sjáðu það næsta), [b][/b], o.s.frv. Eins og og með öll önnur tög þá þarft þú að sjá um að loka þeim í réttri röð, til dæmis:
[url=http://www.phpbb.com/][img]http://www.phpbb.com/images/phplogo.gif[/url][/img]
er ekki rétt en það gæti valdið því að innlegginu verði eytt þannig að passaðu þig.");
$faq[] = array("--", "Sýna myndir í innleggjum");
$faq[] = array("Bæta við mynd í innleggjum", "phpBB BB kóði inniheldur tag sem er til að setja inn myndir í innleggin þín. Þú þarft að hafa tvennt í huga þegar þú notar þessi tög; mörgum notendum líkar ekki að það séu settar margar myndir inn í innlegg og myndin verður að vera þegar til á vefnum (hún getur ekki bara verið á þinni tölvu til dæmis, nema hún sé vefþjónn!). Það er núna ekki möguleiki á því að vista myndir á vefþjóninum þar sem phpBB er(allt þetta kemur að öllum líkindum í næstu útgáfu af phpBB). Til að sýna myndir þá þarftu að setja veffangið sem inniheldur myndina innan: [img][/img] taga. Til dæmis:
[img]http://www.phpbb.com/images/phplogo.gif[/img]
Eins og kemur fram kemur í veffanga útskýringunum að ofan getur þú sett mynd innan [url][/url] taga ef þú vilt, t.d.
[url=http://www.phpbb.com/][img]http://www.phpbb.com/images/phplogo.gif[/img][/url]
myndi gera svona:

");
$faq[] = array("--", "Önnur mál");
$faq[] = array("Get ég bætt við mínum eigin tögum?", "Nei, það er ég hræddur um ekki. Við erum athuga með að bjóða upp á möguleika á því í útgáfu 3.0");
?>